laugardagur, janúar 12, 2008

Hvað er málið!

Halda menn að þeir geti bara rænt 11-11 búðina mína með reglulegu millibili! Ekki líst mér á það - og ég sem bý í besta hverfinu í bænum (að mínu mati allavega). Held að þessir aumingjar ættu að girða í brók og reyna að vinna eins og menn í staðinn fyrir að hræða líftóruna úr vinnandi fólki. Ég hef því miður enga samúð með svona vesalingum - ef þú ert nógu heimskur til að lenda í ruglinu (þú rænir væntanlega ekki búð nema vera í ruglinu) þá nenni ég ekki að vorkenna þér!

Kíkti annars í bæinn með lögfræðiskvísunum í gærkvöldi í kjaft og hvítvín. Það var bara gaman og á köflum mjög áhugavert. Gubbulyktin inni á Vegamótum var hins vegar ekki að gera góða hluti - stundum sakna ég reykingastybbunnar!

Sófaleiðangur næstur á dagskrá og svo dömuboð í Mosó í kvöld :)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hææææææ!! Og svo helduru að ég vilji koma og búa í borg óttans með öllum villimönnunum!! Ekki sjens. Það eiga allir nóg af peningum í sveitinni og þar er maður sko ekki rændur. Ekki einu sinni Nanna og Deddi! Held það sé betra

Nafnlaus sagði...

Æjjjj, gerðu það, flyttu í borgina - þú getur nú aldeilis látið þessa villimenn kenna á því ;)