fimmtudagur, ágúst 31, 2006

Bara varð...

að deila því með ykkur að ég á núna nýtt uppáhaldslag þökk sé Stínu minni á Dalvíkinni. Lagið góða heitir Ojala pudiera borrarte og er með Maná sem hefur verið ein af mínum uppáhaldshljómsveitum síðan ég var í Guatemala. Þeir eru nákvæmlega jafn góðir og fyrir 10 árum síðan! Spurning um að kaupa diskinn ...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já Gulla mín, segðu svo að við reddum ekki málunum í tölvutæknisendalögámillimálunum ha !!!
Þetta lag er alveg uppáhalds núna sko, verst að ég gat ekki sent þér hitt stuðlagið með þeim elskulegum líka. Við verðum svo að fara að grufla upp tónleika með þeim og skella okkur...af því að við erum svo ríkir námsmenn ;o)...en ef að þú hefur náð að kenna mér eitthvað Gulla mín, þá er það það að það (og hvað voru mörg þaðíþví?) er svo nóg til af peningum í heiminum og hið klassíska
"til hamingju, þú hefur unnið þvottavél !!!" ;o)

Og þar sem að ég er ókrýnd drottning "repeat" á uppáhaldslög (bentu mér á einhvern annan en mig sem að hefur hlustað 87 sinnum á Nylon á nokkrum dögum!!!), mæli ég með því að Ojalá verði þar bara næstu daga.

REPEAT á etta Stína