Vá hvað maður nennir endalaust að blogga þegar maður er í próflestri - kannski ekki skrýtið þegar maður á að vera að lesa um "and-mismununar löggjöf" ;) Tvö próf búin og þrjú eftir og merkilegt nokk þá hefur bara gengið skítsæmilega miðað við lestur og almennan undirbúning. Það er bara alveg gjörsamlega vonlaust að einbeita sér að bókunum svona á vorin, þá á maður bara að vera að gera eitthvað allt annað!
Plönin fyrir sumarið eru þau að gera þetta að göngusumrinu mikla og fara loksins að gera eitthvað sem manni finnst skemmtilegt í staðinn fyrir að bíða eftir því að eignast mann sem nennir að dröslast með manni á fjöll. Það er orðið útséð með það vegna hins háa aldurs (og eflaust af fleiri ástæðum) og því ekkert annað í stöðunni en að taka málin í eigin hendur, hætta þessu væli og reima á sig skóna.
Skálagerðisbúar eru svo búnir að leggja það í nefnd að fá að byggja sér sólpalla til að njóta hins frábæra íslenska sumars til hins ítrasta. Pallapartý og grillveislur um hverja helgi! Greyið Gummi að hafa fengið það verkefni að smíða 3 palla með aðstoð frá Skálagerðisdömunum ;) Held nú samt að það sé hægt að setja okkur í fleiri verkefni en virðist við fyrstu sýn - við erum nú ekki dreifbýlingar fyrir ekki neitt!
Annars best að halda áfram með lesturinn - bara rétt rúm vika eftir!
þriðjudagur, maí 06, 2008
Próflestur
Birt af
Gulla
kl.
15:12
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Ég býð mig fram sem göngufélaga er einmitt að fara á Eyjafjallajökul núna um helgina og það væri bara gaman að fá þig með sem félaga í sumar.
P.s. gangi þér sem allra best í prófinu
Kveðja
Elfa Björk
Hæhæ
Gangi þér vel í prófunum. Þú veist að það er stutt að Esjunni frá Mosó ;)
Kv. Lína og Jóhannes Líndal sem er orðinn 3ja mánaða
Elfa: Frábært! Væri bara gaman - ég er reyndar ekki í neinni sérstakri æfingu en það hlýtur að koma ;)
Lína: Þarf einmitt að prófa að fara á Esjuna - gott að byrja á því að fara í Mosó og sjá svo til ;)
Skrifa ummæli